Ertu reyndur bókari? at Deloitte
Kopavogur, Capital Region, Iceland -
Full Time


Start Date

Immediate

Expiry Date

04 May, 26

Salary

0.0

Posted On

03 Feb, 26

Experience

2 year(s) or above

Remote Job

Yes

Telecommute

Yes

Sponsor Visa

No

Skills

Accounting, Bookkeeping, Financial Reporting, Communication Skills, Service Orientation, Business Central, DK Experience

Industry

Business Consulting and Services

Description
Company Description Deloitte er stærsta ráðgjafar- og endurskoðunarfyrirtæki heims, með um 457.000 starfsmenn í yfir 150 löndum. Hjá Deloitte á Íslandi starfa um 360 starfsmenn, allt sérfræðingar á sínum sviðum, þar á meðal endurskoðun, tækniráðgjöf, fjármálaráðgjöf, áhætturáðgjöf, skatta- og lögfræðiráðgjöf og viðskiptalausnum. Job Description Deloitte leitar að öflugum og drífandi einstakling í spennandi og krefjandi starfs bókara í Bókhald og launadeild. Við bjóðum viðskiptavinum hérlendis og erlendis m.a. upp á sjálfvirknivæðingu á fjármálaferlum, bókhalds-, launa- og reikningshaldsþjónustu, rekstrargreiningu og aðra ráðgjöf á sviði fjármálaferla. Hefðbundinn vinnudagur: Umsjón með fjárhagsbókhaldi og skýrslugerð til stjórnenda Vinna að tilfallandi verkefnum fyrir viðskiptavini Almenn skrifstofustörf Stuðningur við markaðssókn og fylgjast með spennandi tækifærum Þátttaka í gæðaferlum Qualifications Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á öllu sem við kemur bókhaldi, reikningshaldi og vilja til að þróast í starfi. Þinn bakgrunnur, reynsla og hæfni: Reynsla af bókhaldi skilyrði Reynsla af DK og Business Central Viðurkenndur bókari, kostur en ekki skilyrði Sjálfstæð og öguð vinnubrögð Góð samskiptahæfni, jákvæðni og rík þjónustulund Additional Information Um teymið Teymið samanstendur af fjölbreyttum hópi starfsmanna; framtíðar og núverandi reynsluboltum á ólíkum aldri og með alls konar áhugamál. Teymið vinnur náið saman og styður hvort annað til að þroskast og þróast í starfi. Svo höfum við auðvitað gaman af því að fagna saman stórum sem smáum áföngum. Starfsþróun þín Við trúum því að það sé ávallt rými til að læra en þú færð þjálfun og stuðning frá reyndum sérfræðingum í teyminu þínu. Við starfsupphaf færðu leiðbeinanda sem kemur þér inn í starfið og coach sem aðstoðar þig við að þróa þig áfram í starfi. Þú lærir mikið af þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum atvinnugeirum, þú fylgist vel með á þínu fagsviði og við að sama skapi styðjum við þinn vöxt með símenntunartækifærum. Að auki bjóðum við upp á: Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat Regluleg frammistöðu samtöl Samstarfsfélaga „buddy“ sem kemur þér inn í starfið Styrk til verðandi foreldra Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks í höfuðstöðvum fyrirtækisins á Dalvegi Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið, t.d. hlaupahópar, golfklúbbur, fótbolti í hádeginu og leikjaherbergi svo eitthvað sé nefnt Við hlökkum til að fá umsóknina þína Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyþór Guðjónsson ([email protected]) og Ásta Þyri Emilsdóttir ([email protected]). Tekið er á móti umsóknum (ferilskrá og kynningarbréf) til og með 16.febrúar í gegnum heimasíðu Deloitte, www.deloitte.is. Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi. Field of interest: Finance & Accounting Level of hire: Experienced hire
Responsibilities
The role involves managing financial bookkeeping and reporting to management, as well as working on ad-hoc projects for clients. Additional tasks include general office work and supporting market initiatives.
Loading...