Við erum að ráða í móttökuna hjá Deloitte. at Deloitte
Kopavogur, , Iceland -
Full Time


Start Date

Immediate

Expiry Date

09 Jun, 26

Salary

0.0

Posted On

11 Mar, 26

Experience

0 year(s) or above

Remote Job

Yes

Telecommute

Yes

Sponsor Visa

No

Skills

Customer Service, Interpersonal Skills, Organization, Problem Solving, Communication, Attention To Detail, Flexibility, Teamwork, Independent Work, Icelandic, English, Computer Literacy, Administration

Industry

Business Consulting and Services

Description
Company Description Deloitte er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar, skatta– og lögfræðiráðgjafar og tengdrar þjónustu. Alþjóðlegt net aðildarfélaga okkar og tengdra félaga spannar meira en 150 lönd og landsvæði (sameiginlega vísað til sem „félög Deloitte"). Hjá Deloitte starfa um 460.000 sérfræðingar sem stefna saman að því að veita ávallt framúrskarandi þjónustu þar af eru 360 á Íslandi. Job Description Við leitum að aðila sem nýtur þess að vinna með fólki og leggur sig fram um að skapa jákvætt andrúmsloft fyrir viðskiptavini og samstarfsfólk. Starfið er fjölbreytt þar sem móttakan gegnir lykilhlutverki í daglegri starfsemi okkar. Hlýlegt, faglegt og traustvekjandi viðmót er því mikilvægur þáttur í starfinu sem reynir á samskiptahæfni, skipulag og lausnamiðaða nálgun Helstu verkefni og ábyrgð Móttaka viðskiptavina og annarra gesta Almenn afgreiðsla og símsvörun Ýmiskonar umsýsla við starfsmannabeiðnir Þátttaka í sameiginlegum verkefnum innanhúss Ýmis almenn skrifstofustörf Qualifications Menntunar- og hæfniskröfur Rík þjónustulund og mjög góð færni í mannlegum samskiptum Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg Nákvæm og vönduð vinnubrögð Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi Sveigjanleiki og geta til að takast á við fjölbreytt verkefni Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í rituðu og töluðu máli Góð almenn tölvukunnátta Additional Information Um teymið Móttakan tilheyrir Rekstrarsviði sem samanstendur að auki af viðskipta- og markaðstengslum, tölvudeild og þjónustudeild. Bakgrunnur fólksins okkar er m.a. úr viðskiptafræði, kerfisstjórnun, sálfræði, lögfræði og fjármálum. Starfsþróun Við trúum því að það sé ávallt rými til að læra. Það kann enginn allt frá fyrsta degi. Þú færð viðeigandi þjálfun og munt vaxa með teymunum okkar. Þú lærir mikið á þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér. Að auki bjóðum við upp á: Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat. Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf Góðan aðbúnað í skrifstofuhúsnæði okkar að Dalvegi 30 Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum Við hlökkum til að fá umsóknina þína Nánari upplýsingar um starfið veita Guðbjörg Fanndal Torfadóttir [email protected] og Helen Breiðfjörð [email protected] Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte, www.deloitte.is, til og með 22. mars 2026. Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi. Field of interest: Administration Level of hire: Experienced hire
Responsibilities
The main tasks involve managing client and guest reception, general administrative support, answering phones, and participating in internal office tasks. The role is central to daily operations, requiring a warm, professional, and trustworthy demeanor.
Loading...